Pistill eftir mig í viðskiptablaði morgunblaðsins - “Þú uppskerð eins og þú sáir”
Fyrir nokkrum árum síðan sat ég fyrirlestur þar sem fjallað var um nokkrar hliðar atvinnuleitar og var ferilskráin eitt af aðal umræðuefnunum. Fram að þessum fyrirlestri hafði ég lítið pælt í því hvernig ætti að setja upp ferilskrá, hvað hún ætti að innihalda og hvað vel unnin ferilskrá skiptir í raun og veru miklu máli. Það er eflaust ekki til hin eina rétta leið við að setja upp ferilskrá en það eru til margar rangar og allt of margir eru að brenna sig á þeim. Ég myndi seint telja mig einhvern sérfræðing í gerð ferilskráa, en á síðustu árum hef ég fengið tækifæri við að aðstoða, lagfæra og meta þær hjá hinum og þessum. Ég tók þá eftir að allt of marga skortir metnað og þekkingu við að setja upp ferilskrá.
Af hverju ætti fyrirtæki að búast við metnaðarfullum starfskrafti ef hann hefur ekki metnað til að senda frá sér almennilega ferilskrá ?
Gefðu þér því tíma og leggðu metnað í ferilskránna, því hún eru fyrstu kynni fyrirtækisins á þér. Taktu fram það sem þú hefur afrekað í fyrri störfum og hvað þú lærðir á þeim tíma sem getur gagnast þér í nýja starfinu, auk þess að taka saman nauðsynlegar upplýsingar eins og ; almennar upplýsingar um umsækjanda, menntun, starfsreynslu, verkefni eða félagsstörf og umsagnaraðila. Ekki eyða plássi í upplýsingar sem skipta minna máli. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en 1-2 blaðsíður. Innsiglaðu svo góða vinnu með því að vista ferilskránna í PDF skjali áður en þú sendir hana frá þér.
Það er vonandi að þessi stutta grein fái þig til að hugsa um hvernig þú setur saman ferilskránna næst þegar þú sækir um nýtt starf.
Greinina má lesa í heild sinni á www.stjornvisi.is

