Sigurður Svansson

  • Um mig
  • Greinar
  • Verkefni
  • Archive
  • RSS
Skellti mér á skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur á vegum Nýjerja í Hörpunni í gær þar sem umfjöllunarefnið var Social Business. 
Margt áhugavert sem kom fram, en það var Louis Richardson sem heillaði mig kannski hvað mest. en hann hefur mikla reynslu á þessu sviði.Það var svo hann Omar Davison hjá IBM sem setti þetta allt í samhengi og fór yfir virkni kerfisins. Það var gaman að sjá hvernig þeir hafa tekið þætti sem allir þekkja vel eins og Facebook Status, grúppur og Google Docs og splæst þeim saman í eitt. Þetta er eitthvað sem fyrirtæki ættu að skoða vel ef þau eru ekki með svipað kerfi nú þegar. Þá aðalega þegar kemur að verkefnavinnu. Það getur verið mikill tími sem fer í að skoða alla póstana, leita í gögnum aftur í tímann o.s.frv …. Frábært að geta haft þetta allt á einum stað, vistað til framtíðar.
Takk kærlega fyrir mig Nýherji.
Pop-upView Separately

Skellti mér á skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur á vegum Nýjerja í Hörpunni í gær þar sem umfjöllunarefnið var Social Business.

Margt áhugavert sem kom fram, en það var Louis Richardson sem heillaði mig kannski hvað mest. en hann hefur mikla reynslu á þessu sviði.

Það var svo hann Omar Davison hjá IBM sem setti þetta allt í samhengi og fór yfir virkni kerfisins. Það var gaman að sjá hvernig þeir hafa tekið þætti sem allir þekkja vel eins og Facebook Status, grúppur og Google Docs og splæst þeim saman í eitt.

Þetta er eitthvað sem fyrirtæki ættu að skoða vel ef þau eru ekki með svipað kerfi nú þegar. Þá aðalega þegar kemur að verkefnavinnu. Það getur verið mikill tími sem fer í að skoða alla póstana, leita í gögnum aftur í tímann o.s.frv …. Frábært að geta haft þetta allt á einum stað, vistað til framtíðar.

Takk kærlega fyrir mig Nýherji.

    • #socialbizrvk
    • #socialbusiness
    • #iceland
    • #harpan
    • #nýherji
  • 3 days ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
Pistill eftir mig í viðskiptablaði morgunblaðsins - “Þú uppskerð eins og þú sáir”
Fyrir nokkrum árum síðan sat ég fyrirlestur þar sem fjallað var um nokkrar hliðar atvinnuleitar og var ferilskráin eitt af aðal umræðuefnunum. Fram að þessum fyrirlestri hafði ég lítið pælt í því hvernig ætti  að setja upp ferilskrá, hvað hún ætti að innihalda og hvað vel unnin ferilskrá skiptir í raun og veru miklu máli. Það er eflaust ekki til hin eina rétta leið við að setja upp ferilskrá en það eru til margar rangar og allt of margir eru að brenna sig á þeim. Ég myndi seint telja mig einhvern sérfræðing í gerð ferilskráa, en á síðustu árum hef ég fengið tækifæri við að aðstoða, lagfæra og meta þær hjá hinum og þessum. Ég tók þá eftir að allt of marga skortir metnað og þekkingu við að setja upp ferilskrá.
Af hverju ætti fyrirtæki að búast við metnaðarfullum starfskrafti ef hann hefur ekki metnað til að senda frá sér almennilega ferilskrá ?
Gefðu þér því tíma og leggðu metnað í ferilskránna, því hún eru fyrstu kynni fyrirtækisins á þér.  Taktu fram það sem þú hefur afrekað í fyrri störfum og hvað þú lærðir á þeim tíma sem getur gagnast þér í nýja starfinu, auk þess að taka saman nauðsynlegar upplýsingar eins og ; almennar upplýsingar um umsækjanda, menntun, starfsreynslu, verkefni eða félagsstörf og umsagnaraðila.  Ekki eyða plássi í upplýsingar sem skipta minna máli. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en 1-2 blaðsíður. Innsiglaðu svo góða vinnu með því að vista ferilskránna í PDF skjali áður en þú sendir hana frá þér.
Það er vonandi að þessi stutta grein fái þig til að hugsa um hvernig þú setur saman ferilskránna næst þegar þú sækir um nýtt starf.
Greinina má lesa í heild sinni á www.stjornvisi.is
Pop-upView Separately

Pistill eftir mig í viðskiptablaði morgunblaðsins - “Þú uppskerð eins og þú sáir”

Fyrir nokkrum árum síðan sat ég fyrirlestur þar sem fjallað var um nokkrar hliðar atvinnuleitar og var ferilskráin eitt af aðal umræðuefnunum. Fram að þessum fyrirlestri hafði ég lítið pælt í því hvernig ætti  að setja upp ferilskrá, hvað hún ætti að innihalda og hvað vel unnin ferilskrá skiptir í raun og veru miklu máli. Það er eflaust ekki til hin eina rétta leið við að setja upp ferilskrá en það eru til margar rangar og allt of margir eru að brenna sig á þeim. Ég myndi seint telja mig einhvern sérfræðing í gerð ferilskráa, en á síðustu árum hef ég fengið tækifæri við að aðstoða, lagfæra og meta þær hjá hinum og þessum. Ég tók þá eftir að allt of marga skortir metnað og þekkingu við að setja upp ferilskrá.

Af hverju ætti fyrirtæki að búast við metnaðarfullum starfskrafti ef hann hefur ekki metnað til að senda frá sér almennilega ferilskrá ?

Gefðu þér því tíma og leggðu metnað í ferilskránna, því hún eru fyrstu kynni fyrirtækisins á þér.  Taktu fram það sem þú hefur afrekað í fyrri störfum og hvað þú lærðir á þeim tíma sem getur gagnast þér í nýja starfinu, auk þess að taka saman nauðsynlegar upplýsingar eins og ; almennar upplýsingar um umsækjanda, menntun, starfsreynslu, verkefni eða félagsstörf og umsagnaraðila.  Ekki eyða plássi í upplýsingar sem skipta minna máli. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en 1-2 blaðsíður. Innsiglaðu svo góða vinnu með því að vista ferilskránna í PDF skjali áður en þú sendir hana frá þér.

Það er vonandi að þessi stutta grein fái þig til að hugsa um hvernig þú setur saman ferilskránna næst þegar þú sækir um nýtt starf.

Greinina má lesa í heild sinni á www.stjornvisi.is

    • #MBL
    • #Viðskiptablaðið
    • #Stjórnvísi
  • 3 weeks ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+

Þú uppskerð eins og þú sáir

Fyrir nokkrum árum síðan sat ég fyrirlestur þar sem fjallað var um nokkrar hliðar atvinnuleitar þar sem ferilskráin var eitt af aðal umræðuefnunum. Fram að þessum fyrirlestri hafði ég lítið pælt í því hvernig ætti  að setja upp ferilskrá, hvað hún ætti að innihalda og hvað vel unnin ferilskrá skiptir í raun og veru miklu máli. Þegar ég setti mína fyrstu ferilskrá saman fór ég þessa almennu leið, tók saman helstu upplýsingar um sjálfan mig, menntun, starfsreynslu, áhugamál o.fl án þess að bæta einhverju aukalega við og pæla í framsetningu. Þetta á eflaust við marga sem eru að setja saman sína fyrstu ferilskrá.

Það er eflaust ekki til hin eina rétta leið við að setja upp ferilskrá en það eru til margar rangar og allt of margir eru að brenna sig á þeim. Ég myndi seint telja mig einhvern sérfræðing í gerð ferilskráa, en á síðustu árum hef ég fengið tækifæri við að aðstoða, lagfæra og meta ferilskrár hjá hinum og þessum. Ég tók þá eftir að allt of marga skortir metnað og þekkingu við að setja upp einfalda ferilskrá.

Af hverju ætti fyrirtæki að búast við metnaðarfullum starfskrafti ef hann hefur ekki metnað til að senda frá sér almennilega ferilskrá ?

Gefðu þér tíma og leggðu metnað í ferilskránna, því hún eru fyrstu kynni fyrirtækisins á þér.  Taktu fram það sem þú hefur afrekað í fyrri störfum og hvað þú lærðir á þeim tíma sem getur gagnast þér í nýja starfinu.  Ekki eyða plássi í upplýsingar sem skipta minna máli eins og til dæmis áhugamál. Ferilskráin á að vera vel hnitmiðuð, þ.e. 1-2 blaðsíður í mesta lagi.Eibeittu þér að því að setja inn upplýsingar sem eiga við það starf sem þú sækir um.

Eftirfarandi atriði er t.d. gott að taka fram :

  • Almennar upplýsingar um umsækjenda | Nafn, Kennitala, GSM, Vefpóstur, Heimilisfang
  • Menntun | Ár, Skóli, Námsbraut
  • Starfsferill  | Talið upp frá nýjasta starfi til þess elsta | Eðli starfs, Afrek, Lærdómur 
  • Verkefni  og/eða Félagsstörf
  • Aðrar upplýsingar |  Tölvu og Tungumálakunnátta
  • Umsagnaraðilar

Hér heima er venjan að hafa mynd af umsækjanda í ferilskrá og því er kostur að hafa góða mynd, því engin mynd er betri en léleg mynd.  Innsiglaðu svo góða vinnu með því að vista ferilskránna á PDF skjali áður en þú sendir hana frá þér.

Seinast en ekki síst þá er hvet ég lesenda til að Googla nafnið þitt, því það eru meiri líkur en minni að aðilinn sem þú sækir um vinnu hjá muni gera það. Þá er gott að vera búinn að hreinsa út allt sem gæti haft áhrif á umsóknarferlið.

Vonandi að þessi færsla komi að góðum notum þegar kemur að því að setja saman ferilskrá.

Gangi þér vel !

Fyrir áhugasama, þá er stutt grein frá  Creative Guerrilla Marketings sem tekur saman nokkrar óhefðbundnar leiðir til að fanga drauma starfið.

http://www.creativeguerrillamarketing.com/guerrilla-marketing/20-amazing-guerrilla-job-resumes/

  • 1 month ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
If you want to live a memorable life. You have to be the kind of person who remembers to remembers - Joshua Foer
  • 1 month ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+

RED BULL GIVES WINGS

Síðastliðið sumar bauð Red Bull á Íslandi, þeim Maríu Birtu leikkonu og kaupkonu,Davíði Arnari eiganda Mintsnow vörumerkisins og Sigga Svans (mér), starfsmanni Red Bull í fallhlífastökk hjá Skydive.is

Hugmyndin var að gefa þeim sem hafa verið vörumerkinu til taks á síðustu mánuðum tækifæri að upplifa eitthvað alveg nýtt og aðstoða við að ná settu markmiði.

María Birta, opinion leader fyrir Red Bull á Íslandi hafði í byrjun sumars sett sér það markmið að ná 200 stökkum til að geta fengið réttindi til að notast við svo kallaðan batwing- leðurblökubúning og var Red Bull á Íslandi meira en til í að aðstoða hana 

Dagurinn var hreint út sagt frábær, ekki nóg með að Davíð og ég vorum að stökkva í fyrsta skipti heldur fengum við einnig að eyða deginum með áhugasömum einstaklingum um fallhlífastökk, sem voru meira en til í að deila með okkur reynslusögum, hvort sem þeir voru að taka sýn fyrstu skref eða voru lengra komnir.  

Silent sá svo um að setja upptökurnar saman frá Skydive.is og Jóhanni Bjarna, meðlimi Futeki Kensei og er niðurstaðan 4 skemmtileg video sem taka saman allt það besta frá deginum. Myndböndin hafa dreifst vel um veraldarvefinn en á fyrstu tveim dögunum fékk Vimeo Síða Red Bull Iceland yfir 5.000 áhorf og hátt í 100 share í gegnum Facebook.

Fyrir áhugasama þá er hægt að sjá stutt mynbönd frá stökkunum hér :

  • Red Bull Iceland Gives Wings - María Birta
  • Red Bull Iceland Gives Wings - Davíð Arnar
  • Red Bull Iceland Gives Wings - Siggi Svans

Það er ekki spurning að þetta verður gert aftur á næsta ári …. Verður þú ein(n) af þeim sem kemur með ?  

    • #redbull
    • #redbulliceland
    • #wiiings
    • #skydive
    • #freefall
    • #skydive.is
    • #mintsnow
    • #summer
    • #2012
  • 5 months ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
PreviousNext

Red Bull Iceland Gives Wings 

Um daginn bauð Red Bull á Íslandi þeim Maríu Birtu leikkonu og frumkvöðlinum Davíð Arnari Oddgeirsyni í fallhlífastökk hjá skydive.is. Hérna eru nokkrar myndir sem ég tók frá deginum.

Jóhann Bjarni, meðlimur í parkour grúppunni Futeki Kensei sá svo um að taka skemmtilegheitin upp og er myndband væntanlegt. 

    • #redbulliceland
    • #redbull
    • #iceland
    • #wings
    • #gopro
    • #Hella
    • #skydive
  • 8 months ago
  • 2
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
Pop-up View Separately
PreviousNext

Hjólabretta myndataka  

Ljósmyndir sem ég tók frá einstaklega skemmtilegum degi þar sem mér gafst tækifæri á að ljósmynda nokkra af bestu hjólabretta strákum Íslands. 

Myndirnar eru teknar á þremur vinsælum stöðum ; Hjartagarðurinn, þar sem er búið að setja upp mjög svo spennandi aðstöðu fyrir hjólabretta kynslóðina, Hörpunni og svo hjólabretta garðinum, en aðstaðan þar var til fyrirmyndar og þar fékk maður að sjá strákana uppá sitt besta.

Frábær dagur með eintómum snillingum !

    • #redbulliceland
    • #skater
    • #iceland
    • #wiiings
    • #amazing
    • #sky
  • 8 months ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
Fyrir um mánuði síðan setti Red Bull á Íslandi saman myndband með Tomma Þ. Markmiðið var að reyna heilla dómnefndina sem sá um að velja 3 stráka og 3 stelpur til að keppa í loka keppni Art of Motion í Grikklandi í lok september 2012. Í framhaldinu fjallaði fréttablaðið / vísir.is um Parkour íþróttina og myndbandið.
Ljósmyndir : Sigurður Svansson
Upptaka : Eiríkur Þór Hafdal
Hér fyrir neðan er greinin sem var birt á visi.is | 18.08.2012
Umfjöllun á visi.is
Umfjöllun í fréttablaðinu  
Parkour er jaðarsport sem hægt er að æfa hvar sem er. Iðkendur íþróttarinnar hlaupa á hundruðum. Íþróttir „Fyrir mér er parkour það að nota umhverfið sem maður hefur í kringum sig til að leika sér,“ segir Tommi Þ. Guðmundsson, parkour-iðkandi með meiru.Parkour er jaðarsport sem í hugum marga snýst um að hlaupa upp veggi, hoppa yfir grindverk og fara í heljarstökk fram af húsþökum en að sögn Tomma er það miklu meira. „Í stuttu máli snýst parkour um að komast á milli staða á sem áhrifaríkastan hátt og skemmta sér í leiðinni. Það er hægt að æfa hvar sem er því það eina sem þú þarft ert þú sjálfur og þægileg föt,“ segir Tommi. Hann segir alla sem hafa áhuga á geta byrjað að stunda sportið og að ekki þurfi að vera í sérstaklega góðu formi til þess að byrja. „Ég hafði aldrei æft neitt þegar ég byrjaði en maður kemst alveg í form við að stunda þetta,“ segir hann. „Ég mæli samt ekki með að fólk byrji á því að hoppa fram af húsþökum,“ bætir hann við og hlær. Aðspurður hvort ekki sé mikið um meiðsli segir hann svo ekki vera. „Ég hef aldrei slasað mig alvarlega á þessu. Eftir því sem maður lærir meira þá lærir maður sjálfkrafa að beita líkamanum betur sem auðveldar til dæmis allar lendingar,“ segir hann.Hægt er að æfa parkour á nokkrum stöðum hérlendis og þar á meðal er Fimleikafélagið Björk. Óli Tómas Freysson er yfirþjálfari þar og segir hann parkour vera lífsstíl frekar en íþrótt. „Það skiptir ekki máli hver er bestur heldur snýst þetta um að koma saman og leika sér,“ segir hann. Óli er spretthlaupari en byrjaði í parkour fyrir tveimur árum. „Við fáum frí frá æfingum í september og erum þá hvött til að fara í aðrar íþróttir á meðan til að halda okkur í formi. Ég hafði prufað alls konar hluti áður en ákvað að skella mér í parkour og varð strax ástfanginn af því og hef ekki getað hætt,“ segir hann. Hann telur iðkendur hérlendis hlaupa á hundruðum en svo virðist sem þeir séu helst strákar undir þrítugu. Hann segir sportið þó vera alveg jafn mikið fyrir konur og hvetur þær til að prufa að mæta á æfingu. Algengt er að sjá iðkendur að leik við Stjórnarráðið þegar mikið er í gangi í miðbænum og eru því allar líkur á að hægt verði að líta listina með eigin augum þar í dag í tilefni menningarnætur í Reykjavík. tinnaros@frettabladid.is
Pop-upView Separately

Fyrir um mánuði síðan setti Red Bull á Íslandi saman myndband með Tomma Þ. Markmiðið var að reyna heilla dómnefndina sem sá um að velja 3 stráka og 3 stelpur til að keppa í loka keppni Art of Motion í Grikklandi í lok september 2012. Í framhaldinu fjallaði fréttablaðið / vísir.is um Parkour íþróttina og myndbandið.

  • Ljósmyndir : Sigurður Svansson
  • Upptaka : Eiríkur Þór Hafdal

Hér fyrir neðan er greinin sem var birt á visi.is | 18.08.2012

  • Umfjöllun á visi.is
  • Umfjöllun í fréttablaðinu  

Parkour er jaðarsport sem hægt er að æfa hvar sem er. Iðkendur íþróttarinnar hlaupa á hundruðum. Íþróttir „Fyrir mér er parkour það að nota umhverfið sem maður hefur í kringum sig til að leika sér,“ segir Tommi Þ. Guðmundsson, parkour-iðkandi með meiru.

Parkour er jaðarsport sem í hugum marga snýst um að hlaupa upp veggi, hoppa yfir grindverk og fara í heljarstökk fram af húsþökum en að sögn Tomma er það miklu meira. „Í stuttu máli snýst parkour um að komast á milli staða á sem áhrifaríkastan hátt og skemmta sér í leiðinni. Það er hægt að æfa hvar sem er því það eina sem þú þarft ert þú sjálfur og þægileg föt,“ segir Tommi. Hann segir alla sem hafa áhuga á geta byrjað að stunda sportið og að ekki þurfi að vera í sérstaklega góðu formi til þess að byrja. „Ég hafði aldrei æft neitt þegar ég byrjaði en maður kemst alveg í form við að stunda þetta,“ segir hann. „Ég mæli samt ekki með að fólk byrji á því að hoppa fram af húsþökum,“ bætir hann við og hlær. Aðspurður hvort ekki sé mikið um meiðsli segir hann svo ekki vera. „Ég hef aldrei slasað mig alvarlega á þessu. Eftir því sem maður lærir meira þá lærir maður sjálfkrafa að beita líkamanum betur sem auðveldar til dæmis allar lendingar,“ segir hann.

Hægt er að æfa parkour á nokkrum stöðum hérlendis og þar á meðal er Fimleikafélagið Björk. Óli Tómas Freysson er yfirþjálfari þar og segir hann parkour vera lífsstíl frekar en íþrótt. „Það skiptir ekki máli hver er bestur heldur snýst þetta um að koma saman og leika sér,“ segir hann. Óli er spretthlaupari en byrjaði í parkour fyrir tveimur árum. „Við fáum frí frá æfingum í september og erum þá hvött til að fara í aðrar íþróttir á meðan til að halda okkur í formi. Ég hafði prufað alls konar hluti áður en ákvað að skella mér í parkour og varð strax ástfanginn af því og hef ekki getað hætt,“ segir hann. Hann telur iðkendur hérlendis hlaupa á hundruðum en svo virðist sem þeir séu helst strákar undir þrítugu. Hann segir sportið þó vera alveg jafn mikið fyrir konur og hvetur þær til að prufa að mæta á æfingu. 

Algengt er að sjá iðkendur að leik við Stjórnarráðið þegar mikið er í gangi í miðbænum og eru því allar líkur á að hægt verði að líta listina með eigin augum þar í dag í tilefni menningarnætur í Reykjavík. tinnaros@frettabladid.is

    • #redbulliceland
  • 9 months ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+

Tommi Þ. Guðmundsson | Red Bull Art of Motion 2012 qualifier | #RedBullIceland

Í myndbandi má sjá Parkour snillinginn Tomma Þ. Guðmundsson sýna hvað í honum býr í von sinni um að komast alla leið í lokakeppni Art of Motion í Grikklandi.

Um er að ræða Parkour / Free Running keppni sem haldin er af Red Bull og er keppnin talin einn af hápunktum  þeirra sem stunda þessa spennandi íþrótt.

Keppnin hefur verið haldin víða um heim eins og Brasilíu, Japan, Bandaríkjunum, Austuríki, Bretlandi og núna verður hún í Grikklandi, nánar tiltekið Santorini þar sem keppendur munu keppast um að hrífa dómnefndina.

Myndbandið hér að ofan er framlag Tomma í video samkeppnina sem verður núna í boði í fyrsta skipti í sögu Art of Motion. Myndbandið er tekið upp á kunnulegum stöðum eins og Hallgrímskrikju, Hörpunni, miðbæ Reykjavíkur, Gullfoss og Geysir.

Það var Eiríkur Hafdal hjá hafdal.is sem sá um að taka upp allt fjörið og Árni Freyr Þorsteinsson sem sá um að búa til lagið sem spilast undir.

Núna er bara að bíða og sjá hvort að Tommi verði ekki einn af þeim þrem sem kemst alla leið í lokakeppnina.

    • #redbull
    • #redbulliceland
    • #parkour
    • #freerunning
    • #iceland
    • #gullfoss
    • #geysir
    • #reykjavik
  • 10 months ago
  • 1
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
According to research, the conversations your salespeople have with potential customers are 53% of the reason customers choose you over your competition. That’s more than price, brand, and product quality combined!
  • 11 months ago
  • Permalink
Share

Short URL

TwitterFacebookPinterestGoogle+
Page 1 of 2
← Newer • Older →

Logo

About

Sigurður Svansson heiti ég og er fæddur árið 1987. Hérna skrifa ég um áhugasvið mín sem eru fjölmörg.

Me, Elsewhere

  • @siggisvans on Twitter
  • Facebook Profile
  • redbulliceland on Vimeo
  • sigurdursvansson on Flickr
  • My Skype Info

Twitter

loading tweets…

  • RSS
  • Random
  • Archive
  • Mobile
Effector Theme by Pixel Union